Berg fasteignasala kynnir: Kvíslartunga 134, í Mosfellsbær, tveggja hæða 198,3 fm. einbýlishús auk 46,8 fm. bílageymslu, samtals 245,1 fm. Húsið er í smíðum og er fullbúið að utan en tilbúið til innréttinga að innan. Búið er að leggja hita í gólf, bæði á neðri hæð og efri. Búið er að draga rafmagn í á neðri hæð.
Nánari lýsing:
Neðri hæð : Komið er í anddyri , til hægri er gengið í bílageymslu, rúmgóð með stórum glugga og góðri vinduhurð. Til vinstri úr anddyri er baðherbergi/snyrting. Úr holi er komið í bjart og rúmgott eldhús og borðstofu. Útgengt á lóð úr borðstofu. Vandaður steyptur stigi á efri hæð. Lofthæð á neðri hæð er 2,7 m.
Efri hæð. Á efri hæð eru 4 svefnherbergi öll rúmgóð með uppteknu lofti. Hjónaherbergið er 18 fm. Mjög rúmgott baðherbergi, 13,5 fm. Sjónvarpsrými og Þvottahús. Tvennar svalir, fallegt útsýni af svölum. Allur frágangur vandaður og góð aðkoma að húsi.
Verð: 135 m. Nánari upplýsingar veitir Pétur Pétursson , í síma 897-0047, tölvupóstur [email protected].