Opið hús: 18. september 2025 kl. 17:30 til 18:00.
Berg fasteignasala kynnir:
Leirutangi 9 í Mosfellsbæ. 164,6 fm. fm. einbýlishús á tveimur hæðum auk tvíbreiðs, 48,1 fm. bílskúrs , samtals: 212,7 fm. Húsið stendur á stórri
931 fm. lóð sem er mjög vel gróin með trjám og runnum. Garðurinn í góðri rækt. Mjög góð aðkoma að húsi.
Nánari lýsing: Komið er í
anddyri með fatahengi. Til vinstri er
gestasnyrting, nýlegum flísum og hreinlætistækjum. Til hægri er gott
herbergi. Hol . Til vinstri er
eldhús með nýlegri innréttingu,gólfefnum og eldhústækjum. Eldhúseyja. Inn af eldhúsi er
þvottahús með innréttingu og stórum glugga. Útgengt úr þvottahúsi á lóð.
Lítið búr er inn af eldhúsi.
Stofan er björt og rúmgóð . Borðstofa til hliðar og útgengt úr stofu á sólpall sem snýr í vestur. Nýlegt vinylparket frá Agli Árnasyni er á allri neðri hæðinni.
Stigi liggur á efri hæð. Á efri hæðinni eru
3 svefnherbergi ,
baðherbergi með kari og sturtuklefa.
Rúmgott sjónvarpsrými. Úr sjónvarpsrýminu er útgengt á svalir sem vísa í vestur.. Gegnheilt parket er á gólfum.
Lítil geymsla. Yfir efri hæð er geymsluloft. Komið er að viðhaldi á baðherberginu.
Garðurinn er í góðri rækt, falleg tré og runnar. Næg bílastæði framan við hús. Staðsetningin er mjög góð. Afar barnvænt, rólegt og gróið hverfi. Stutt í skóla, leikskóla,sundlaug,íþróttahús,golfvöll og góðar göngu-og hjólaleiðir. Húsið var málað að utan, bæði þak og veggir, fyrir nokkrum árum. Fasteignamat næsta árs er: 134,400,000-
Allar nánari uppl. hjá Pétri s. 897-0047 eða [email protected]