Opið hús: 14. júlí 2025 kl. 17:00 til 17:30.
Berg fasteignasala kynnir:
Vel staðsett 65,8 fm. íbúð á jarðhæð með sér inngangi og sér garði við Hulduhlíð 11 í Mosfellsbæ.Nánari lýsing: Komið er í
anddyri. Gangur með parketi og til hægri er
baðherbergi með flísum á gólfi og sturtuklefa. Gluggi er á baðherbergi. Handklæðaofn og lagt fyrir hita í gólfi sem eftir er að tengja. Inn af baðherbergi er þvottahús. Til vinstri úr gangi er
svefnherbergi með parketi á gólfi.
Geymsla er innan íbúðar sem nýtist líka sem herbergi.
Stofan er björt og rúmgóð með opið í eldhús. Upprunaleg eldhúsinnrétting.
Uppþvottavél og ísskápur fylgja. Úr stofu er
útgengt í sér garð sem er afgirtur. Snýr í suður.
Sameiginleg geymsla fyrir drekk,hjól og barnavagna,íbúðin á sitt pláss þar. Lóðin er stór umhverfis húsið, vel gróin tré og runnar. Leiktæki fyrir börnin og leikvöllur til hliðar við lóðina. Mjög skjólgott og hlýlegt hverfi. Næg bílastæði og góð aðkoma. Gæludýr eru leyfð í húsinu.
Allar nánari upplýsingar hjá Pétri s. 897-0047 eða [email protected]