Berg fasteignasala kynnir eignina
Gullsmári 9, í póstnr. 201 í Kópavogi, nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer 222-3817 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Íbúðin er fyrir 60 ára og eldri. Vel staðsett
49,3 fm. íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýli við Gullsmára í Kópavogi. Eignin er vel skipulögð og hefur fengið gott viðhald og eru innréttingar mikið endurnýjaðar.
Rúmgott svefnherbergi með parketi og góðum skápum. Björt stofa með útgengi á lítinn sér sólpall. Lítið eldhús með léttum vegg sem skilur að eldhús og stofu. Uppþvottavél og ísskápur fylgja. Baðherbergi með sturtuklefa. Lagt fyrir þvottavél og þurkara á baðherbergi.
Lítil sér geymsla fylgir íbúðinni.Öflugt húsfélag er rekið í fjölbýlishúsinu. Á jarðhæð er sameiginlegur matsalur með heitum mat í hádeginu á sanngjörnu verði. Einnig aðstaða fyririr föndur og ýmsa afþreygingu. Snyrtistofa og hárgreiðslustofa. Púttvöllur með 18 holum. Á efstu hæð hússins er samkomusalur sem hægt er að fá leigðan fyrir samkvæmi og veislur.
Örstutt er í heilsugæslu í göngufjarlægð. Mikil þjónusta er í hverfinu. Smáralind í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Pétursson , í síma 897-0047, tölvupóstur [email protected].