Sólvellir 14, 760 Breiðdalsvík
Tilboð
Atvinnuhús/ Hótel / Gistiheimili
45 herb.
1577 m2
Tilboð
Stofur
4
Svefnherbergi
37
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1982
Brunabótamat
770.100.000
Fasteignamat
146.120.000

Hótel Breiðdalsvík  er til sölu.   Einstakt tækifæri í ferðaþjónustu.

37 herbergja hótel, samtals 1443 fm.   að auki er einbýlishús á einni hæð fyrir starfsfólk eða gistingu. Það hús er 135 fm.  Heildarfermetrar fasteigna eru því samtals : 1,578 fm. 

Hótelið er   í fullum rekstri  með veitingasal, aðstöðu fyrir ráðstefnur,  í einstakri náttúrufegurð á Austurlandi.

Hótel Breiðdalsvík  er kjörið tækifæri  fyrir fjárfesta eða rekstraraðila  í ferðaþjónustu  sem vilja eignast  rótgróið og vel þekkt  hótel með langa og góða sögu á þessum fallega stað. Miklir möguleikar til vaxtar og frekari uppbyggingar. Hótelið var stofnað 1983 og hefur verið í stöðugri endurnýjun og uppbyggingu alla tíð. Hótelið er afar vel búið undir aukna ferðaþjónustu og aukin   fjölda ferðamanna.  Hótelið er staðsett við þjóðveg nr. 1  í afar fallegu sjávarþorpi á Breiðdalsvík sem er á sunnanverðum Austfjörðum. Hótelið er hluti af markaðsverkefninu The tiny town of Breiðdalsvík  sem hefur skapað sterka ímynd  og stöðugan vöxt  í gisti- og veitingasölu síðustu ár.  Hótelið fékk hvatningarverðlaun  Ábyrgrar ferðaþjónustu  árið 2022. Sterk viðskiptasambönd eru við stærstu aðila í ferðaþjónustunni. 
Helst atriði:
37 herbergi í tveimur samliggjandi byggingum, ein svíta  og 6 superior herbergi. 30 standard herbergi ( einstaklings,-tveggja,-þriggja,-og fjölskylduherbergi.) Snjallrásir í öllum herbergjum,snjallsjónvörp í öllum herbergjum.
Veitingastaður með sæti  fyrir allt að 100 manns.
Setustofa með arni,Chesterfield sófasetti og bókasafni.
Ráðstefnu- og fundaraðstaða,  fyrir 40-300  manns  með fullkominni Av-tækni
Útispa með,heitum potti,sauna og köldu kari.

Viðbótarfasteign:  íbúðarhús,  á staðnum  fyrir starfsfólk eða útleigu.

Hótelið í hjarta Breiðdalsvíkur með mjög góða aðkomu og næg bílastæði. Fjórar hleðslustöðvar fyrir rafbíla. 

Fjárfesting í innviðum árin 2023-2024  er um 35 milljónir. 

Allar nári upplýsingar hjá Pétri s. 897-0047  eða [email protected]
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.