Sólvellir 2, 760 Breiðdalsvík
27.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
131 m2
27.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1947
Brunabótamat
46.950.000
Fasteignamat
12.650.000

Berg fasteignasala kynnir eignina Sólvelli  2    á  Breiðdalsvík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 217-8982 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindum.

Eignin Sólvellir 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 217-8982, birt stærð 131.6 fm.  Einbýlishúsið er 77,1  fm. og  bílskúr/geymsla er 54,5 fm.  samtals 131,6  fm. 

Vel staðsett einbýlishús í góðu viðahaldi.  Húsið skiptist í  anddyri, þvottahús, gang og 3 svefnherbergi, baðherbergi,  stofu  og eldhús.   Gólfefni eru eikarparkett,flísar og dúkur.  Baðherbergið er nýlegt með nýjum lögnum, flísalögnum og hreinlætistækjum. Húsið er vel skipulagt og góð nýting á plássi. Gluggar og gler í eru nýleg.    Nýlegar skólplagnir út í götu.  Fallegur garður.  Tré og runnar. Góð aðkoma að húsi og bílastæði.   Fallegt útsýni.   Húsinu fylgir góður geymsluskúr,sem nýtist sem geymsla eða vinnuaðstaða, td. við smíðar og fl. Góð aðkoma að skúrnum. 
Á Breiðadalsvík   er sundlaug og íþróttahús, góð matvöruverslun , grunnskóli , leikskóli og glæsilegt hótel. Góð smábátahöfn.  Gróið og fallegt sjávarþorp og  falleg náttúra í næsta nágrenni, Breiðdalurinn með öllum sínum fallegu fjöllum, ám og lækjum. Ótal gönguleiðir. 


Nánari upplýsingar veitir Pétur Pétursson , í síma 897-0047, tölvupóstur [email protected].

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.