Berg fasteignasala kynnir:Brekkutangi 24 í Mosfellsbæ. Vel staðsett endaraðhús á vinsælum stað. Rólegt og barnvænt hverfi. Mjög fjölskylduvænt tveggja hæða endaraðhús með aukaíbúð í kjallara. Nánari lýsing:
Neðri hæð. Komið er í
anddyri með flísum á gólfi og fatahengi.
Gestasnýrting sem er nýlega endurnýjuð. Nýlegar innréttingar og hreinlætistæki.
Eldhús til vinstri með nýlegum innréttingum og gólfefnum.
Hiti í eldhúsgólfi. Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt á
sólpall úr stofu. Gluggar snúa í suð-vestur. Stigi liggur á efri hæð.
Nýlegur stigi með eikarþrepum og stálhandriðum. Góður frágangur.
Efri hæð. Á efri hæð eru
4 svefnherbergi og eitt
tómstundaherbergi. Sér smíðað sem tónlistarherbergi með mikilli hljóðdempun. Flottur frágangur. Nýjar innihurðir. Parket á gólfum. Útgengt á svalir úr hjónaherbergi. Eftir er að setja handrið á svalir.
Baðherbergið er allt endurnýjað. Hiti í gólfi og nýjar innréttingar og hreinlætistæki. Sturtuklefi og baðkar. Þvottahús er á efri hæð. Flísar á gólfi.
Bílskúrinn er 26 fm. Kjallaraíbúð. Íbúðin er um 65 fm. Sér inngangur. Rúmgott baðherbergi og geymsla, stofa, eldhús og svefnherbergi. Allt rúmgóðar einingar.Garðurinn er í góðri rækt, falleg tré og runnar. Góð grasflöt. Framan við hús er hellulagt bílaplan og gangstétt að húsi. Snjóbræðslukerfi undir að hluta.
Allar nánari uppl. hjá Pétri í síma 897-0047 eða [email protected]