Berg fasteignasala kynnir:
Klapparhlíð 9 í Mosfellsbæ.Mjög falleg og mikið endurnýjuð
87,5 fm. íbúð á 2. hæð með
sér inngangi á þessum vinsæla stað í Mosfellsbæ.
Nánari lýsing: Komið er í
anddyri. Skápar. Gangur með parketi.
Tvö rúmgoð svefnherbergi með parketi og góðum skápum.
Baðherbergið er allt ný endurnýjað. Með flísalögnum og hreinlætistækjum. Góð sturta. Gluggi er á baði.
Þvottahúsið er með flísum á gólfi og innréttingu.
Rúmgóð geymsla er innan íbúðar. Stofan er björt og rúmgóð.
Opið úr stofu í eldhús.
Nýleg sérsmíðuð innrétting og eldhústæki. ( Miele og Siemens) Ísskápur og uppþvottavél fylgja með í kaupum. Einnig þvottavél og þurrkari. Útgengt á góðar svalir úr stofu. Svalir snúa í suður. Sameignin er mjög snyrtileg og húsið í góðu viðhaldi. Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæð. Fallegur garður með trjám og runnum.
Leikvöllur fyrir börnin innan lóðar. Fallegt umhverfi. Góð bílastæði.
Örstutt er í sundlaug og íþróttahús. Skóli í göngufjarlægð. Golfvöllur og flottar gönguleiðir.
Þetta er topp eign með frábæra staðsetningu. Allar nánari upplýsingar hjá Pétri í síma 897-0047 eða [email protected]