GJALDSKRÁ

GJALDSKRÁ

 

GJALDSKRÁ BERG FASTEIGNASÖLU EHF

1.0. Almennt um þóknun.

1.1.
Eftirfarandi gjaldskrá er leiðbeinandi fyrir gjald fyrir þjónustu Berg fasteignasölu ehf og gildir nema um annað hafi verið samið, þá til hækkunar eða lækkunar eftir eðli viðskiptanna.
Fjárhæðir í gjaldskránni eru tilgreindar án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram. Virðisaukaskattur er 24.0% og leggst hann ofaná þóknun samkvæmt gjaldskránni.

1.2.
Ákvörðun þóknunar mótast af þeim fjárhagslegu hagsmunum sem tengjast því verki sem unnið er að. Sé unnið að verki, þar sem ekki er sérstaklega samið um þóknun, skal þóknunin fyrir verkið ákvörðuð samkvæmt tímagjaldi. Þegar þóknun er ákvörðuð samkvæmt tímagjaldi skal tímaskrá fylgja reikningi.
Söluþóknun innifelur verðmat fasteignarinnar, gerð söluyfirlits, gerð kauptilboðs, kaupsamnings, kostnaðaruppgjörs og afsals. Fyrir auglýsingar, myndatöku og skjalaöflun greiðist sérstaklega sbr. síðar.

1.3.
Hvar sem þóknun í gjaldskrá þessari er ákveðin í krónutölu, en ekki sem hundraðshluti af verðmæti, er fjárhæð þóknunarinnar grunngjald sem breytist í samræmi við almennar verðlagsbreytingar. Þóknun fyrir unnið verk er miðuð við þá gjaldskrá sem gildir þegar reikningur fyrir verkið er gerður.


2.0. Kaup og sala.

2.1
Sala fasteigna
2.1.1. Sala fasteignar í almennri sölu er 2,5 % af söluverði eignar MEÐ VSK.( 2,02 án vsk) Lágmarks sölulaun ekki lægri en 372,000- með vsk.   
2.1.2. Sala fasteignar í einkasölu er 1,95% af söluverði MEÐ VSK. ( 1,57% án vsk. )  Lágmarks sölulaun aldrei lægri en 322,400  með vsk.
2.1.3. Aðstoð og/eða skjalafrágangur við sölu og kaup fasteigna er 1% af söluverði auk vsk, þó aldrei lægri en kr. 370.000.-  með vsk. 
2.1.4. Sala félaga og atvinnufyrirtækja 5% af heildarsölu, þ.m.t. birgðir með vsk.
2.1.5. Sala bifreiða sem settar eru upp í kaupverð fasteigna 3.0 % af söluverði en þó aldrei lægri en kr. 100,000-  með vsk. 
 

2.1.6. Endursala eignar sem áður hefur verið seld í makaskiptum 1,4 % af söluverði   með vsk.
2.1.7. Sala sumarhúsa og lóða 3% af söluverði  með vsk. En þó aldrei lægri en kr. 372.000.-  með vsk. 

Makaskipti.
Við makaskipti er þóknun samkv. því er fram kemur í 2.1.1 lið. Hafi önnur hvor eignin hvergi verið til sölu skal þóknun vera 1.5% af söluverði þeirrar eignar.

Hafi eign sem boðin er í makaskiptum verið í einkasölu hjá öðrum fasteignasala skal sá fasteignasali einn taka söluþóknun vegna þeirrar eignar samkvæmt söluumboði, enda áriti hann og ábyrgist eigin kaupsamning auk þess að koma fram fyrir hönd sinna umbjóðenda í tilboðs og samningsferlinu.


3.0. SKJALAGERÐ OG RÁÐGJÖF.

3.1.
Þóknun fyrir að fara yfir og athuga samninga og skjöl við sölu eða kaup fasteigna eða annarra eigna sem fasteignasali, lögmaður eða annar hefur gert er samkvæmt tímagjaldi.
3.2.
Í þeim tilvikum sem gerð veðleyfa, veðbandslausna, umboða, skuldabréfa og tryggingabréfa tengist ekki kaupsamningsgerð er þóknun kr. 4.000.- fyrir hvert skjal með vottun ef við á.
3.3.
Þóknun fyrir munnlega ráðgjöf og leiðbeiningar er samkvæmt tímagjaldi.


4.0. Skoðun og verðmat fasteignar.

Fyrir verðmat á íbúðarhúsnæði sé fasteign ekki sett í sölu reiknast þóknun kr. 24,800 m/vsk.
Fyrir skoðun og skriflegt verðmat á atvinnuhúsnæði sem ekki kemur til sölumeðferðar greiðist 0,1% af verðmatsfjárhæðinni (auk virðisaukaskatts) en þó að lámarki kr. 54.900.- m/vsk.


5.0. Þóknun fyrir útleigu fasteigna / atvinnueigna

5.1.
Þóknun fyrir gerð leigusamnings um stakt íbúðarhúsnæði skal vera kr. 99.200,- m/vsk  auk kostnaðar við gagnaöflun.
 

5.2.
Þóknun fyrir gerð leigusamnings um atvinnuhúsnæði skal vera kr 186.000,- m/vsk auk tímagjalds sem fer í viðtöl og gagnaöflun.
 

5.3.
Þóknun fyrir að annast milligöngu um að koma á leigusamningi skal samsvara mánaðarleigu hins leigða auk virðisaukaskatts.
 

6.0. Eignaumsýsla, skuldaskil og uppgreiðsla lána.

Þóknun fyrir vinnu við eignaumsýslu, gerð samninga um skuldaskil og uppgreiðslu lána er samkvæmt tímagjaldi, sbr. kafla 8.0. Taki fasteignasalan við fjármunum sem notast til skuldaskila greiðist fyrir það samkv. tímagjaldi en þó að lágmarki kr. 18.600.- m/vsk

 

7.0. Ýmis ákvæði.

7.1
Kaupandi fasteignar greiðir fast gjald kr. 79.360-  m/vsk fyrir þjónustu fasteignasölunnar sem m.a. innifelur ráðgjöf og aðstoð við kauptilboðsgerð, öflunar greiðslumats, þinglýsingarmeðferð kaupsamnings og afsals.
7.2
Seljandi fasteignar greiðir fast gjald kr. 68.200  m/vsk, vegna öflunar gagna um eignir, svo sem vegna veðbandayfirlita, ljósrit teikninga og ýmissa skjala.
7.3
Kostnað við gerð og birtingu auglýsinga skal viðskiptamaður greiða samkvæmt gjaldskrá viðkomandi auglýsingamiðils hverju sinni. 

7.4. Kostnaður við myndatöku fagljósmyndara eru kr. 15.000 m/vsk. En er innifalið ef um einkasölu er að ræða.

8.0. Tímagjald.

Tímagjald er kr. 18,600 pr. klst. með  vsk.